Velkomin á Ugludeild
Á Ugludeild eru nemendur á aldrinum 2–4 ára. Hóparnir okkar heita Þrestir og Rjúpur.
Ugludeild er opin virka daga kl. 7:45–16:15.
Við lærum í gegnum leik, samskipti og eigin reynslu.
Starfsfólk Ugludeildar
Þrestir
- Sigríður ÞorsteinsdóttirHópstjóri og staðgengill leikskólastjóra
- SteinunnHópstjóri
Rjúpur
- FanneyHópstjóri
- BrittaHópstjóri
Dagskipulag Ugludeildar
Skólaárið 2026–2027
| Tími | Viðfangsefni |
|---|---|
| 07:45–08:30 | Róleg stund |
| 08:30–09:00 | Morgunmatur |
| 09:00–09:15 | Samvera |
| 09:15–11:15 | Viðfangsefni vikunnar eftir hópum – sjá hér fyrir neðan. |
| 11:15–13:00 | Hádegismatur og hvíld |
| 13:00–15:00 | Hópastarf og hressing |
| 15:00–15:30 | Samvera og útivera |
| Dagur | Þrestir | Rjúpur |
|---|---|---|
| Mánudagur | Lubbi / sköpun | Sköpun / Lubbi |
| Þriðjudagur | Skógarferð | Málörvun / hópastarf |
| Miðvikudagur | Málörvun og hópastarf | Skógarferð |
| Fimmtudagur | Hreyfing / Blær / val | Blær / hreyfing / val |
| Föstudagur | Flæði | Flæði |
Lubbi og Blær skipta með sér vikum.
Samverur
Samverur fara fram í sófaskoti og herbergi. Við förum yfir daginn, höldum afmæli, njótum bókaormsins, syngjum, segjum sögur og förum í leiki.
Hópastarf: fínhreyfingar og seigla
Í hópastarfi æfum við okkur að klippa, líma, perla og fást við önnur verkefni sem þjálfa fínhreyfingar.
Við æfum seiglu með því að prófa ný verkefni og klára þau, jafnvel þótt þau séu svolítið erfið. Við æfum okkur að gefast ekki strax upp, fá aðstoð, bíða eftir röðinni og reyna aftur ef eitthvað mistekst.

