Skógurinn sem námsvettvangur
Gullin í grenndinni hófst hjá Krakkaborg og Flóaskóla árið 2019. Verkefnið tengir saman skólastig með útinámi og skógrækt, meðal annars í Skagási.
Við lærum með því að gera
Í verkefninu hafa nemendur meðal annars gróðursett tré, kynnst grisjun og lært um hlutverk skóga í kolefnisbindingu. Náttúran gefur tækifæri til rannsókna, samvinnu og skapandi viðfangsefna.
Tengsl við náttúru og samfélag
- Að kynnast lífríkinu og skilja betur tengsl þess við umhverfið.
- Að sýna náttúrunni virðingu og taka þátt í umhverfisvernd.
- Að upplifa ánægju af útiveru og eigin þátttöku.
- Að efla tengsl milli nemenda leik- og grunnskóla.
Samstarf skólastiganna
Elstu nemendur Krakkaborgar og nemendur 1. bekkjar Flóaskóla hittast í skógræktinni við Skagás og vinna saman að fjölbreyttum verkefnum. Miðað er við fimm til sex samverustundir yfir skólaárið. Nemendur 2. bekkjar geta einnig tekið þátt í einhverjum tilvikum.
Áhersla er lögð á náttúrufræði, umhverfisvitund og náttúruvernd. Nemendur kynnast skógrækt, kolefnisbindingu og ólíkum vistkerfum. Sameiginleg verkefni, meðal annars vinna við gönguleiðir og merkingar, gefa þeim færi á að læra með því að gera.
Samstarfsaðilar verkefnisins eru Flóahreppur, Skógræktarfélag Árnesinga og Skógræktarfélag Villingaholtshrepps.
Samstarfsáætlun og heimsóknir 2026–2027Dagsetningar og skipulag · PDFUmsjón með útinámi
Ída Bjarnadóttir
Ída er sérgreinastjóri Krakkaborgar og hefur umsjón með Gullunum í grenndinni, öllum skógarferðum og útinámi leikskólans.
ida@krakkaborg.isTölvupóstur til Ídu