VINÁTTA OG VELLÍÐAN

Blær – Vinátta

Við æfum góð samskipti og hlúum að vináttunni.

Vinátta í daglegu lífi

Krakkaborg hóf þátttöku í Vináttuverkefni Barnaheilla haustið 2019. Verkefnið styður fyrirbyggjandi starf gegn einelti með áherslu á samskipti og að allir fái að tilheyra hópnum.

Fjögur gildi

  • Umburðarlyndi – við tökum fjölbreytileikanum opnum örmum.
  • Virðing – við hlustum á aðra og tökum tillit til þeirra.
  • Umhyggja – við sýnum samkennd og hjálpum hvert öðru.
  • Hugrekki – við setjum mörk og styðjum þann sem þarf á því að halda.

Blær fylgir okkur

Bangsinn Blær er tákn vináttu og trausts. Sögur, samræður, leikir og tónlist skapa tækifæri til að ræða tilfinningar og æfa hvernig við getum verið góðir félagar.

Að setja orð á tilfinningar

Unnið er með Blæ á öllum deildum Krakkaborgar. Í samverustundum fá nemendur tækifæri til að tjá hugmyndir, líðan og tilfinningar og hlusta á aðra. Þannig fléttast málörvun og félagsþroski saman við vinnu að góðum skólabrag. Gildin umhyggja, hugrekki, virðing og umburðarlyndi eru leiðarljós í samskiptum dagsins.

Handbók um snemmtæka íhlutunLesa nánar í flettibókinni