Ugludeild

September og október fréttir

Við á ugludeild vinnum mikið með börnunum að því að tengja verkefni við það sem er að gerast í mánuðinum. September var gulur mánuður og október var bleikur mánuður, og reynt var að tengja litina við daglegt starf á deildinni. Unnið var með gulan lit í mismunandi verkefnum yfir allan september, hvort sem það var að leira, mála eða föndra. Bleikur litur var einnig notaður mikið yfir októbermánuð í mörg mismunandi verkefni. Í lok mánaðarins tengdum við svo báða liti saman í vinnustofunni.

Yfir báða mánuði var unnið með efnivið úr náttúrunni í kringum svæðið okkar. Börnin söfnuðu laufum saman í skógarferðum og notuðu þau svo laufin í mismunandi verkefni þegar þau voru orðin þurr. Gerðar voru kórónur og kransar með laufunum í september. Mörg verkefni barnanna eru tengd við náttúruna, árstíðina og þemu mánaðarins.

Það eru mikið æfðar fínhreyfingar og grófhreyfingar yfir daginn. Fínhreyfingar eru yfirleitt þegar róleg stund er eftir hádegi, þá fá börnin að lita, klippa og líma og jafnvel þræða mismunandi hluti á bönd. Grófhreyfingar eru æfðar í skógarferðum og í íþróttasalnum. Skógarferðir eru á skóglendu svæði nálægt leikskólanum sem gengið er að. Þar fá börnin að velta sér í grasinu, skríða undir og á milli trjáa og læra að tengja náttúruna við leikinn. Hér fær hugmyndaflugið að ráða för en einnig er það tengt inn í mismunandi lærdóm frá liðinni viku. Í íþróttasalnum æfum við að hoppa, hlaupum á eftir boltum, förum eftir fyrirmælum og hreyfum okkur. Hér fá börnin einnig frjálsan tíma til að hlaupa um og hafa gaman.

← Aftur á Ugludeild

← Allar fréttir