Velkomin í leikskólann
Góð samskipti heimilis og leikskóla skipta máli frá fyrsta degi. Ræddu við okkur um þarfir nemandans, venjur og það sem hjálpar honum að finna öryggi í nýju umhverfi.
Í þátttökuaðlögun fylgir foreldri nemandanum fyrstu dagana og tekur þátt í daglegu starfi. Við kynnumst fjölskyldunni og vinnum saman að því að skapa öryggi og traust. Fyrirkomulag og lengd aðlögunar taka mið af þörfum hvers nemanda í samráði við foreldra.
Hafðu samband við okkurForeldrasamstarf
Gott samstarf heimilis og leikskóla byggir á trausti, gagnkvæmri virðingu og opnum samskiptum. Saman styðjum við við líðan, nám og þroska nemenda. Foreldrar eru hvattir til að deila ábendingum og hugmyndum og taka þátt í skólasamfélaginu.
Foreldrafélagið
Foreldrar allra nemenda Krakkaborgar eiga aðild að foreldrafélaginu. Aðalfundur er haldinn við upphaf skólaárs og foreldrar eru hvattir til að taka þátt í starfinu.
Félagið eflir tengsl foreldra og starfsfólks, stuðlar að fræðslu um uppeldi og vinnur að samstarfi við foreldrafélög grunnskólanna.
Meðal sameiginlegra viðburða foreldrafélagsins og leikskólans eru aðventusamvera og sumarhátíð. Félagið hefur einnig stutt við skólastarfið með efniviði og leikföngum.
Leitið til skólans til að fá upplýsingar um núverandi stjórn og þátttöku.
Foreldraráð
Foreldraráð kemur sjónarmiðum foreldra að skólastarfinu á framfæri. Ráðið fjallar um skólanámskrá og áætlanir leikskólans, gefur umsagnir um þær og fylgist með framkvæmd þeirra og kynningu fyrir foreldrum. Það fjallar einnig um meiri háttar breytingar á starfi leikskólans í samstarfi við leikskólastjóra.
Hafið samband við leikskólann til að fá upplýsingar um núverandi fulltrúa foreldraráðs og hvernig koma megi málum til ráðsins.
Opnun og dvalartími
Lóudeild er opin kl. 8:00–16:00.
Nemendur eiga að vera farnir úr húsi við lokun. Fylgið umsömdum dvalartíma og hafið samband við skólann um breytingar.
Skóladagatal og lokanirTILBÚIN Í DAGINN
Hvað fer í leikskólatöskuna?
Smá pollasull, stór ævintýri og nóg af leik! Með réttan fatnað og aukaföt í töskunni er auðveldara að njóta dagsins.
Fyrir útiveruna
- Regnföt og stígvél
- Hlýr útifatnaður eftir árstíð
- Húfa og nokkur pör af vettlingum
- Hlýir sokkar og hentugir skór
Til skiptanna
- Nærföt og sokkar
- Buxur og bolur
- Peysa
- Fleiri skipti eftir þörfum
Nafnið með!
Merkið fatnað og skó svo þeir rati aftur á réttan stað.
Kíkjum í töskuna
Fyllið reglulega á aukaföt og takið blautan eða óhreinan fatnað heim.
Hvernig er veðrið?
Veljið föt eftir veðri og árstíð og athugið hvort útiföt og skór þurfi að þorna.
Föt sem má óhreinka sig í gefa meira svigrúm til leiks og uppgötvana.
Umsóknir og gjaldskrá
Sótt er um leikskóladvöl í Krakkaborg í gegnum Völu. Leikskólinn og Flóahreppur veita upplýsingar um dvalartíma og gildandi gjaldskrá.
Sækja um leikskóladvölUmsókn í Völu · opnast í nýjum flipaKrakkaborg á vef FlóahreppsUpplýsingar sveitarfélagsins