MÁLIÐ VERÐUR SÝNILEGT

Tákn með tali

Hreyfitákn styðja við talað mál og samskipti.

Hvað er Tákn með tali?

Tákn með tali, oft skammstafað TMT, er tjáskiptaleið þar sem einföld tákn eru notuð samhliða töluðum orðum. Sérstök áhersla er á lykilorð í setningum. Bendingar, svipbrigði og hreyfingar styðja við skilning og tjáningu.

Sameiginlegur stuðningur

Táknin gera orðin sýnileg og geta hjálpað nemendum að fylgja samtali og tjá eigin óskir. Í Krakkaborg er Tákn með tali hluti af málörvuninni. Foreldrar geta rætt við starfsfólk um þau tákn sem notuð eru í daglegu starfi.

Táknin fylgja daglegu starfi

Í Tákn með tali eru táknin alltaf notuð samhliða töluðu máli. Eitt eða fleiri lykilorð í setningu eru táknuð. Unnið er með aðferðina á öllum deildum Krakkaborgar í mismiklum mæli. Starfsfólk miðlar til foreldra hvaða tákn eru í notkun svo hægt sé að styðja samskiptin með svipuðum hætti heima og í leikskólanum.

Handbók um snemmtæka íhlutunLesa nánar í flettibókinni