VELKOMIN TIL OKKAR

Leikskólinn

Hlýlegt skólasamfélag við Þingborg í Flóahreppi.

Leikur og nám fara saman

Í Krakkaborg fá nemendur tækifæri til að kanna, skapa og læra af eigin reynslu. Starfið byggir á hugmyndum Johns Dewey um nám í gegnum athafnir og leik.

Við leggjum áherslu á samvinnu og skapandi hugsun. Rúmt útisvæði og nágrenni leikskólans bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til útiveru og náttúruskoðunar.

Saga sem hófst árið 1982

Krakkaborg hóf starfsemi í Villingaholtsskóla árið 1982 að frumkvæði foreldra. Leikskólinn flutti í Þingborg árið 1996 og í fyrrum grunnskólahúsnæði staðarins árið 2004. Stærra og endurbætt húsnæði var tekið í notkun árið 2015.

Í dag rekur Flóahreppur leikskólann.

Hugur – Hjarta – Hönd

Einkunnarorðin minna okkur á að hugsun, umhyggja og athafnir eiga samleið. Þau mynda grunn að kynningu okkar á starfinu.

Kynnast skólastarfinu

FÓLKIÐ OKKAR

Stjórnendur og starfsfólk

Sara Guðjónsdóttir

Leikskólastjóri

sara@krakkaborg.is

Kynntu þér stjórnendur, sérkennslustjóra og starfsfólk deildanna.